Kvika er öflugur banki sem stuðlar að umbreytingu og samkeppni á fjármálamarkaði
Kvika veitir fyrirtækjum og stofnunum sérsniðna fjármálaþjónustu auk þess að bjóða einstaklingum fjölbreyttar fjármálalausnir í gegnum sérhæfð vörumerki.
NánarFyrirtæki og markaðir veita faglega og fjölbreytta þjónustu á sviði lánveitinga, verðbréfa- og gjaldeyrisviðskipta og fyrirtækjaráðgjafar.
NánarTM, dótturfélag Kviku, er tryggingafélag sem er leiðandi í stafrænum lausnum trygginga og leggur áherslu á að einfalda tryggingamál.
NánarKvika eignastýring er dótturfélag Kviku sem veitir fjölbreytta eignastýringar- og fjárfestingarþjónustu með áherslu á langtímaárangur.
NánarKvika stundar fjölbreytta fjárfestingarbanka- og eignastýringarstarfsemi í Bretlandi fyrir íslenska jafnt sem erlenda viðskiptavini.
NánarAlhliða fjármálaþjónusta fyrir efnameiri einstaklinga, sjóði og stofnanir með áherslu á langtímaárangur
Sjá meiraSjálfbærniskýrsla Kviku byggir á UFS-leiðbeiningum Nasdaq (ESG Reporting Guide 2.0) auk þess sem GRI-staðlar (GRI Standards) eru hafðir til hliðsjónar og viðeigandi vísum svarað. Deloitte hefur gefið sjálfbærniupplýsingagjöf Kviku fyrir árið 2023, og ráðstöfun grænna fjármuna og nýtingu í græn verkefni samkvæmt grænni fjármálaumgjörð bankans, álit með takmarkaðri vissu, sem má nálgast aftast í skýrslunni.
Eftir að hafa metið tilboðin með ráðgjöfum sínum hefur stjórn Kviku ákveðið að taka tilboði Landsbankans hf. með það að markmiði að ljúka endanlegri áreiðanleikakönnun og undirrita kaupsamning milli bankanna um kaup og sölu 100% hlutafjár TM eins fljótt og auðið er, með hefðbundnum fyrirvörum, s.s. samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og Samkeppniseftirlitsins.
Bankinn hlaut 87 stig af 100 mögulegum og viðheldur því framúrskarandi einkunn í flokki A3. Bankinn er vel fyrir ofan meðaltal í öllum flokkum í samanburði við aðra innlenda útgefendur sem hafa farið í gegnum UFS greiningu hjá Reitun, sem eru um 40 talsins en meðaltal markaðarins er 72 stig af 100 mögulegum.
Staða innlána Auðar, fjármálaþjónustu Kviku, hefur nú náð 100 milljörðum króna og hefur hún aukist um 70 milljarða síðustu tvö ár. Þá hefur viðskiptavinum Auðar fjölgað töluvert en í dag eru þeir orðnir um 45 þúsund.